GreinarFjármálaafglöp í glerhúsi

25.02.220

Borgarstjóri fór mikinn í fjölmiðlum á miðvikudag þar sem hann sagði söluna á eignarhlutum Reykjavíkurborgar og Akureyrarbæjar í Landsvirkjun til ríkisins árið 2006 vera mestu fjármálaafglöp sögunnar á sveitarstjórnarstigi. Þetta er stór fullyrðing og merkilegt að henni sé kastað fram á þessum tímapunkti þegar stutt er í kosningar.  Fátt annað hefur verið í umræðunni á þessu kjörtímabili en fjármálaafglöp þess meirihluta er borgarstjóri fer fyrir. Þar sem hvert málið hefur rekið annað, sem hafa kostað okkur skattgreiðendur Reykjavíkurborgar háar fjárhæðir. Mál sem við í Sjálfstæðisflokknum höfum verið dugleg að gagnrýna, enda fjármál Reykjavíkurborgar í ólestri. Þrátt fyrir tekjuaukningu ár eftir ár á kjörtímabilinu hafa útgjöld verið langt umfram innkomu og því hafa skuldir hlaðist upp. Í upphafi kjörtímabilsins voru skuldir Reykjavíkur 299 milljarðar en eru nú 400 milljarðar. Kjörtímabilið hófst með braggamálinu og síðan hefur hver málið rekið annað. Engin svör hafa fengist um hver kostnaður vegna Fossvogsskóla er orðinn á kjörtímabilinu. Þeim erindum hefur einfaldlega ekki verið svarað og því hef ég orðið að leita til innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar og óska eftir því að hann skoði mál Fossvogsskóla. Eitt er víst að sá kostnaður hleypur á háum upphæðum og vonandi skýrist það fljótlega hver heildarkostnaður er orðinn.

Þessi tímasetning

Hvers vegna er borgarstjóri að henda þessu máli núna inn í umræðuna. Er það vegna þess að 16 árum síðar sé þetta það sem brennur helst á honum eða getur það verið til þess að breiða yfir eitthvað annað? Gæti það verið vegna fréttar Viðskiptablaðsins um að ESA, eftirlitsstofnun EFTA, hefur í tvígang sent innviðaráðuneytinu bréf þar sem óskað er eftir rökstuðningi á reikningsskilum Reykjavíkurborgar sem kunna að vera í trássi við alþjóðlega reikningsskilastaðla. Hingað til hafa Félagsbústaðir, dótturfélag borgarinnar, metið fasteignir sínar á gangvirði fremur en kostnaðarverði. Neyðist félagið til að breyta um matsaðferð gæti það leitt til hátt í 70 milljarða króna niðurfærslu á virði fasteignasafnsins.

Getur mögulega verið að með því að kasta fram máli frá árinu 2006 sé borgarstjóri einfaldlega að kasta ryki í augu borgarbúa? Á kjörtímabilinu höfum við Sjálfstæðismenn verið dugleg að benda á þá staðreynd að sú reikniskilaaðferð sem nýtt hefur verið vegna Félagsbústaða sé ekki rétt, enda hefur þessi aðferð gert að verkum að eignir sem ekki á að selja hafa skekkt ársreikninga Reykjavíkurborgar um 70 milljarða ef rétt reynist. Niðurfærsla Reykjavíkurborgar á um 70 milljörðum vegna húsnæðis félagsbústaða væri mikið fjárhagslegt högg fyrir Reykjavíkurborg. Er það möguleiki að þegar saga þessa kjörtímabils verði skrifuð sé það saga mestu fjármálaafglapa Reykjavíkurborgar? Að minnsta kosti er borgarstjóri í grjótkasti úr glerhúsi þegar hann gagnrýnir fjármálastjórn forvera sinna.

Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks

Valgerður Sigurðardóttir

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *